Mikiđ ađ gera :)
En já, það er alveg allt brjálað að gera hjá mér þessa dagana .. og ég býst ekki við að ég sé eikkvað að fara að slaka á á næstu dögum, en þaað er bara fínt! Skólinn er byrjaður á fullu og ég ætla sko sannarlega að vera dugleg á þessari önn og gera mitt allra besta 8) En já, það sem að ég hef svo mikið að gera núna er t.d Skólinn, vinnan mín góða, einkaþjálfun. Og svo er ég að fara að leika í leikriti í haust með litla leikklúbbnum og æfingarnar eru að fara að byrja, einnig er ég líka að fara að syngja með Bigga Olgeirs í veislu á næstu helgi! Og maður er svona að reyna að finna sér fleiri lög á listann og æfa sig eftir bestu getu. Haha, en þegar ég fæ að slaka á, eins og í dag .. ég hafði eeekkert að gera. Þá tók ég mig bara til og svaf í 3 og hálfan tíma, leti á hæsta stigi :D Ég ætlaði að fá mér smá blund, en neinei ég svaf frá 4 til hálf átt .. Enda hélt mamma að ég væri dauð inní herbergi ;D
En ástæðan fyrir þessu bloggi var ekki sú að tala um hvað ég þykist vera dugleg, heldur ætla ég að skella nokkrum myndum hérna frá London! Þær voru svo fáar hjá mér (einnota myndavél) að ég valdi bara nokkrar góðar og í staðinn fyrir að búa til link ætla ég bara að skella þeim á bloggið:
Þarna var ég á Oxford street, geeðveikt!
Þetta er víst eikkvað svaka merkilegt verk, en ég ákvað að slást í hópinn og hlaupa með hermönnum, og klípa í punginn á einum í leiðinni .. en ég hitti ekki alveg :'D
Þarna má sjá big ben .. merkilegt nokk
Þarna erum við Anna fyrir framan London eye, þið getið ekki ýmindað ykkur hvað þetta er stórt parísarhjól!
Þetta var í bænum þar sem að goth-in komu fyrst frá, ekkert smáá spes bær .. En mjög mikil reynsla að fara þarna :D Fólk var spes!
Svo fórum við á Isle of wight þar sem að ég sá margar skemmtilegar hljómsveitir! Það var geeðveikt þarna!
Þennan dag hélt ég að ég myndi kafna úr hita! úff, og að gista í tjaldi var baraa heitt .. vaknaði alltaf klukkan 6 og fór út að sofa og brenna :D
Og þarna er ég voða kát eikkvað með Isle of wight bjórinn sem að ég get nú ekki sagt að hafi verið góður! :D
- Þetta var voðalega skemmtileg ferð og ég upplifði mikið mjög skemmtilegt :D
En fleira var það ekki í dag, veriði dugleg að læra, vinna eða bara whatever
- Elín
Ömulegi dagur!
Mig vantar úútrás! Þessi dagur er búinn að vera svo skítleiðinlegur og ég er svo pirruð útí lífið að hálfa væri of mikill hellingur!!
Ég byrjaði á því að vakna of seint! ég vaknaði klukkan korter í 8, þá er það bara að duga eða drepast .. Á maður að nenna að hlaupa af stað og vera geðveikt snöggur eða á maður bara að sofa og mæta í næsta tíma? Ég var snögg til, nema hvað að þegar klukkan er svona 5 mín í kemur Þór fram og byrjar að segja : Þú ferð ekki á bílnum ég þarf að nota hann og blablabla, ég tók hann samt. Í skólanum var leiðinlegt, ég var með hausverk og allir tímarnir sem að ég var í í dag voru leiðinlegir! engin eyða, reyndar var Hrafnhildur veik og ég fór ekki í ensku .. sem að var bara fínt, í hádeginu förum við svo ég, Elma Borghild og Baddi útí kríli og ALLIR í bílnum fá sér sælu og súkkulaði, neema ég .. erfitt að vera holl!! Þegar klukkan er svona 10 mín í 1 hringir Þór og segir: Ég þarf að nota bílinn, ég átti einn tíma eftir og spurði hvort að það gæti ekki bara beðið hjá honum. Nei sagði hann og hættu þessu væli! Vá hvað mig langaði að kýla í vegg. Þegar ég var loksins búin í skólanu, búin að hlusta á kennarann í heilan klukkutíma rausa um landakort þá var kominn tími til að fara heim. Þór gat ekki náð í mig neinei (south park) Það var LEMJANDI rigning og ég var á peysunni, þegar ég kom heim hélt ég að ég myndi deyja .. ég hefði alveg eins getað skellt mér í kalda sturtu í öllum fötunum! Vá hvað ég var pirruð. Neinei, þá tekur stúdíóið við .. ég hitti Ester og það fyrsta sem að hún lætur mig gera er að hlaupa upp brekku, þá er ég að tala um brekku brekku engann kellingarhalla! 1km, og ég dó. Ég bað hana svo að fá að fara á boxpúðann og þar fékk ég útrás á ÖLLU! Ekki bara deginum heldur bara öllu, nota reiði mína til að drepa púðann.
Í allan dag langaði mig að fara heim, öskra grenja og æla í koddann minn! Mig vantaði bara eikkverja svona loftbrúðu til að demba mér yfir!! .. En svona getur lífið bara verið! Það er ekki alltaf allt eins og maður vill .. Kannski er þetta bara mánudagsfrekja, gelgja, unglingaveiki .. eða bara slæmur dagur, maður spyr sig?
- Elín
Ágćtis helgi ;D
Jæja, þá ætla ég að blogga örlítið um helgina .. En hún var að mín mati bara alveg ágæt.
Föstudagur;; Þá var skólinn bara stuttur því að það var verið að fara að busa! Ég mætti alveg dúndurfersk í skólann og allt var brjálað útaf þessu busadæmi, krakkarnir í 3.bekk voru líka geðveikt scary .. Með gasgrímur og eikkvað shit, og þessi busun var eiginlega verri en í fyrra! þótt að við fengum ekki neitt létta busun sko =) En já, þetta var allt ógeðslegt .. föstudagurinn sjálfur fór svo í að vera að stússast í bænum, redda hinu og þessu. Um kvöldið var svo haldið heim til Borghildar, þar vorum við nokkur að tjútta. Geðveikt gaman hjá okkur, síðan var náttlega busaballið .. sem að mínu mati var eiginlega ekkert sérstaklega skemmtileg! En jújú, ég skemmti mér alveg ágætlega. Síðan leið mér bara eiginlega illa eftir ballið útaf hinu og þessu og fór bara heim að sofa.
Laugardagurinn;; Laugardagurinn fór nú eiginlega allur í að sofa bara, ég var bara dauðþreytt eftir alla vikuna og ég nennti ekki að gera rassgat. Nema hvað um kvöldið fór ég að syngja í afmæli með Bigga Olgeirs, sem að var bara mjög fínt! Ég skemmti mér allavega konunglega, frítt áfengi og svona, ekki er það nú slæmt! Allir þarna voru hressir og við vorum alveg til svona 2 eða 3, man það ekki alveg. Eftir það fór þreytan að kalla aftur og ég fór heim að sofa ..
Sunnudagur;; Ojj, ég hata sunnudaga .. mér leið ógeðslega illa þegar ég vaknaði, bara illt í haus og maga og ég hélt ég myndi deyja. Nema hvað ég svaf til 4 en leið samt ennþá illa, eeekkert að gera og ég var bara eikkvað að hangsa þangað til ég fór að vinna. Í vinnunni var geðveikt lítið að gera, þannig að tímin leið bara óóógeðslega hægt! Og það er ekki alveg það allra skemmtilegasta sko. Eftir vinnu fór ég svo á rúntinn með Borghild, Elmu og Badda og við skemmtum okkur konunglega :'D .. Partýdiskurinn að meika það í klessu!
Haha, takk fyrir frábært kvöld! ;*
Ojj, svo er það bara ný skólavika .. ég veit ekki hvort ég meiki hana. En ég held að það sé kominn tími til að hætta að vera svona bitur og ég er farin að sofa!
Hafið það bara gott,
- Pirraða Elín
Nýtt hotmail! :)
Það er : elin_sveins@hotmail.com
Fallegar myndir úr djúpinu :)
Ekki var það fleira í dag ;)
Eða jú, NÝJAR MYNDIR! ,,Sumarbland'' Og svo er það eitt lag sem að ég er með á heilanum þessa daga, hlusta bara ekki á annað! downloadið: Dreaming with a broken heart með John Mayer! Það er að segja ef þið fílið þau róleg :)
-Elín
Blablabla ..
But life goes on, á morgun byrjar skólinn og mér finnst það persónulega bara mjög mikið í lagi. Er komin með leið á að vakna á morgnana og fara að vinna, og langar að fara að koma mér í skólann bara .. Í vetur ætla ég mér að vera mjög dugleg og læra like crazy, engin ástæða fyrir sluxi, þessi skiptibókamarkaður er samt ekki að gera sig, margar bækur sem að er ekki hægt að skila útaf nýju skólaefni, pff hvað hef ég að gera við 6 skólabækur? beint í ruslið með þetta! :D Ég hlakka til að sjá busunina og það verður örugglega bara ógeðslegt eins og alltaf! Svo kemur busaballið eikkverntímann, vonandi bara í næstu viku, elska böll ;) Vona bara að það verði dj, finnst það skemmtilegra.
Akkúrat núna í mómentinu er ég að uploada nýjum myndum bæði af menningarnótt og partýinu sem að var heima hjá Matthildi, þetta eru ekki margar myndir en ég ætla samt að setja þær inn ;) Síðan ætla ég nú að fara að lífga eikkvað uppá þetta hjá mér, ætli maður skelli ekki bara eikkverju ófrumlegu eins og slúðri eða eikkvað .. Til að hafa eikkvað sem að fólk vill skoða ;)
En já, ég þarf að vakna í skólasetningu á morgun .. og ég ætla að koma mér í rekkjuna þrátt fyrir að ég eigi ekkert eftir að sofna strax, snúði sóló við á helginni og er svo búin að vera 2 daga í fríi .. maður er ekki lengi að snúa þessum blessaða sólahring við ! Svo er líka bara margt sem að liggur mér á hjarta sem á eftir að trufla mig við svefninn :) ..
Hafið það bara gott ..
p.s Andrea ég get ekki ýmindað mér veturinn án þín! farin að sakna þín strax :(
-Elín
Í Reykjavík í blíđunni :)
Jááá núna er ég stödd í reykjavíkinni og það er bara mjög gaman. Ég kom í gær með flugi, geðveikt ánægð að komast aðeins frá ísafirði enda búin að vera þar í allt sumar. Þegar ég var að fara í flugið þá vildi svo heppilega til að Telma var með mér í vél og við lenntum á sama stað bara sitthvoru megin við ganginn ;) Þannig að það var bara spjallað alla leiðina og flugið var ekkert smá fljótt að líða .. sem að var fínt. Þegar við komum suður biðu Dagný og Guðmunda eftir okkur á flugvellinum og við fengum far með þeim, okkur Telmu var bara skutlað í kringluna strax og þar hittum við Láru júlíu. Svo var bara verslað og verslað, ekkert smá gaman .. ég eyddi samt ekkert miklu, vantar ekki föt! En ég keypti mér allavega skó og peysu og SIMS! nýjasta sims, ekkert smá spennt að fara með hann heim og spila hann, enda á ég eftir að vera í honum bara aaalla daga :D
Í gærkvöldi var líka stuð! Fyrst var ég með Telmu og Láru Júlíu og við fórum á þessa tónleika á Laugardagsvelli, þeir voru svona jáá .. allt í lagi, en samt alltof mikið af fólki! En váá ég verð að segja skoðun mína á littlum stelpum og strákum sem að byrja allt of snemma að reyna að vera gæjar og pæjur. Sko það var þannig að ég var þarna og já, það var alveg fuullt af fólki .. Það fór ekki framhjá mér því að ég sá fullt af littlum stelpum, örugglega svona 93" og 94" sem að voru bara stííífmálaðar og í þrööngum fötum, með aflitað hár liggur við og löbbuðu um eins og þær ættu heiminn 8-) En strákarnir voru ekki skárri, sumir alveg 2 hausum minni en ég og ég er ekki stór! og þeir voru með sko túpu af geli í hárinu á sér í hvítum buxum og vesti og eikkvað, ég gubbaði næstum sko. hvað er málið með þetta? haha, þegar ég var á þessum aldri þá var ég bara barn. Alltaf í rauðri flíspeysu rennt uppí háls, músagrátt hár niðrá rass greitt í píku jogging buxum og x18 skóm. Mér var drullu sama hvernig ég leit út, ég var bara barn :D Og fyrst ég er að tala um þetta þá vil ég lýsa hneyksli mínu á krökkum í dag, ég man þegar ég var lítil þá voru aaalltaf leikir á gamla sjúkrahústúninu .. á hverju kvöldi og alveg 20 til 30 krakkar söfnuðust saman og fóru í leiki, geðveikt gaman! En núna neinei krakkar eru bara inni í tölvunni, hvað er að gerast ?
En nóg með þetta haha, þegar Dagný var búin að vinna þá fórum við bara aðeins á rúntinn með Örnu Sigríði og Matthildi og það var fínt, en síðan fórum við á eikkvern skemmtistað sem að ég man ekki hvað heitir, og það var mjöög gaman :D Hittum vini Dagnýjar og allir voru bara kátir. Í dag vöknuðum við hressar og kátar kl. 13-00 .. stuttu eftir það kom Guðmunda að sækja okkur og við stelpurnar Dagný ég Guðmunda og Telma kíktum í smáralind .. ég og Dagný fengum okkur subway og við kíktum í nookkrar búðir. Nenntum ekkert að vera að taka búðarölt þannig að við ákváðum bara að fara niðrí bæ, það var varla hægt því að sjálfsögðu var ekkert stæði, en eftir svona hálftíma leit fundum við stæði .. Þurftum að labba samt í korter til að komast niðrí bæjinn, við stoppuðum þó ekki lengi í bænum löbbuðum bara .. tók sinn tíma því að það var aaalt crouded sko! geðveikt mikið af fólki og já, veðrið er æði :D

Núna sit ég bara heima hjá Dagný, hún er að vinna til 8 í kvöld og ég ætla baaara að fara í sturtu og reyna að gera mig sæta fyrir kvöldið! Það verður vonandi gaman í kvöld, á alveg von á því sko :D .. Hálfur ísafjörður er í bænum .. haha ég er búin að sjá svona 30 ísfirðinga hérna, alltaf gaman af því ;)
En núna er ég farin, set myndir inn þegar ég kem heim! ..
Þangað til næst,
-Elín
Góđann daginn :)
Núna styttist og styttist í menningarnótt, en hún er á næsta laugardag. Ég get ekki beðið sko, ég er farin að plana hvað ég ætla að gera og plana hvað ég ætla að kaupa mér og bara allt! Það er miðvikudagur og ég er liggur við farin að pakka :D Hef aldrei verið svona spennt fyrir að fara til Reykjavíkur því að það er ekki eins og það sé eikkvað svakalaega merkilegt! Ég er bara ekkert búin að hvíla mig á Ísafirði síðan í vor, ég er búin að vera hérna í aaallt sumar, fyrir utan 2 vikur í London .. En peningar eru peningar og ég er líka búin að vera dugleg að vinna og spara, þannig að núna ætla ég að eyða slatta af pening ;) Ég fer kl. 13:30 á föstudaginn og ég ætla að gista hjá Dagný, það verður gaman að hitta hana ;) Ég hef heyrt um mjöög marga sem að eru að fara suður héðan og það er bara gott mál .. Ég var að lesa í fréttablaðinu í dag að það eru víst eikkverjir svakalegir tónleikar á laugardagsvelli á föstudagskvöldinu og ætli maður skelli sér ekki bara þangað líka .. ? :) Maður má nú ekki missa af nylon sko, ætli þær verðir 3 eða 4 ?
Núna undafarið er ég búin að vera að hlusta mjög mikið á iPod .. því að ég er alltaf í stúdíóinu og maður er ekki að nenna að hlaupa með enga tónlist er það? En ég er ekki með minn iPod heldur Elmu, takk fyrir lánið :D haha! Og inná honum er mjög mikið af íslensku rappi, og ég ætla bara að lýsa hneyksli mínu á íslensku rappi. Ég hef ekki heyrt eitt íslenskt rapp lag þar sem að rapparinn er að tala um annaðhvort dóp eða hvað hann fær mikið að ríða og já, hvað hann er bara aaaðalmaðurinn :D Alveg magnað .. eða svona, já 8-) Ekki samt að ég hafi eikkvað á móti rappi sko, alls ekki :D
En já, ég hef ekkert að segja .. er líka að fara að kíkja á rúntinn á nýja bílnum hennar Katrínar! ;) ..
-Elín
.. :)
Langar ykkur ekki bara stundum að sofa bara forever ? .. Eða þú veist, þið eruð komin með leið á því sem að þið eruð að gera á daginn og bara langar ekkert að vakna :D Eins og ég .. ég mæti í vinnuna kl. 8 á morgnana, fer svo heim klukkan 2 næ í föt og fer svo beint í stúdíóið. Þegar það er búið þá fer ég heim í sturtu og svo aftur að vinna, þá skelli ég mér í stígvél og ljóta svuntu og þríf kjötvinnsluna og kjötborðið. Það er fínt maður, en þegar ég kem heim eftir vinnu þá er ég bara orðin geðveikt þreytt og nenni ekki að hreyfa mig um kvöldið. Æji þessi vika er búin að vera löng og .. ekkert svo spes :) een svona er lífið! Hlakka bara til að fara í skólann, ótrúlegt en satt .. Elma að koma til mín í skólann og svona, ekki slæmt sko ;) Svo verða þessir krakkar busaðir og svona skemmtilegheit, get nú ekki sagt að það verði leiðinlegt að horfa á það :D
En á helginni ætla ég ekki að gera shit, ég nenni ekki að lifa liggur við :D .. bara sofa! En já, mm ég er að fara að vinna á laugardaginn frá 2-6 sem að er bara létt og gott, fæ að sofa út og svona, þannig ekki kvarta ég! Síðan er ég að fara að syngja í afmæli útí vík með Bigga Olgeirs á laugardagskvöldið, það er nú bara gaman :)
En ekki þessi helgi heldur næsta þá verður sko gaman! Þá fer ég suður á menningarnótt, ég hef aldrei farið .. og ég er ekki búin að fara neitt í sumar fyrir utan London, ekki einu sinni innanlands! Þannig að það verður fínt að fá smá frið frá Ísafirði og kíkja suður, versla og hanga með fólkinu sem að verður þar en maður er að heyra að það ætli bara allir að fara :D Sem að er gott! síðan heyrir maður voðalega misjafnt af þessari menningarnótt, sumir segja að hún sé geeeðveik! á meðan aðrir segja að hún sé ekkert neitt voðalega spes 8-) .. En hvað veit maður ? ekki hef ég farið .. baara prófa og dæma svo held ég ;)

Líst allavega ágætlega á þessa mynd, virðist ágæt stemmingin á svæðinu ;)
En núna ætla ég að hætta þessu babbli og fara að sofa, nenni ekki að vera á fótum til að gera ekki neitt ;)
Þangað til næst,
-Elín
Og ţađ sést til gólfs!! :D
En nóg um það, þessi helgi er búin að vera alveg bara .. æðisleg! Án djóks þá er þetta sumar búið að vera besta djamm sumar ever, það klikkar ekki að það er alltaf eikkvað að gerast :o tekið eftir því? Mér finnst bara ótrúlegt að maður er ekki búin að heyra að það sé eikkvað að gerast á næsti helgi sko, djók það er mánudagur. En allavega er ég í alvörunni að vona að það verði ekkert að gerast á næstu helgi, maður ætti nú bara að fara að slaka á .. taka eitt föstudagskvöld og kúra með Elmu yfir video-i eða eikkvað 8-) lesbós. Á föstudaginn var ég samt ekki að gera neitt að mig minnir .. ég var bara á rúntinum eða eikkvað álíka rólegt. Fór meira að segja bara að snemma heim og læti! En hinsvegar á laugardaginn fór ég í besta partý sem að ég hef farið í, og það var á flateyri! Ættuð nú alveg að vita hvar það það var, enda var ÖLLUM boðið :D .. sveittasta partý sumarsins án efa. Tók fullt af myndum og þær koma bráðlega hingað inn, snapfish er bara eikkvað að beila á mér þessa dagana! :s En helgin var alls ekkert búin á sunnudaginn neitt sko, neinei! Þá var ball og læti bara, allir að djamma sem að voru í bænum eða allavega meiri hlutinn held ég, allavega partý alls staðar og læti bara. Ég var reyndar heima alveg til 2 eða eikkvað, beið eftir Elmu því að hún var að vinna til 12 og kom til mín um 2 leitið, við höfðum okkur til og síðan var bara haldið í bæjinn. Þar voru fullt af fólki og svaka stuð bara, eða mér fannst það allavega sko ;D .. Síðan hvarf Elma bara burt í myrkrið um 3 leitið eða eikkvað, og ég fór í eikkvað hálf dautt partý, kom svo bara heim og fór að sofa freekar fersk sko 8-) ..
Svo var náttlega voða gott að fá að sofa út í dag, mér finnst eins og það sé mánudagur á morgun og ég veit að þessi vika á eftir að vera í ruglinu hjá mér hvað það varðar. En það er alveg ótrúlegt hvað mér finnst í alvörunni fínt að vinna í samkaup, ég er núna að fara að byrja að þrífa kjötvinnsluna hjá mömmu og svona svaka stuð .. allavega í eikkverja daga, ekki að mamma mín sætti sig við að ég sé að þrífa fyrir hana :D haha .. ég kann ekkert að þrífa!

Prófið að fara í bað, slökkva öll ljós og hafa kerti og rólega tónlist .. það er í alvörunni bara beest í heimi! Kerti eru bara best sko .. :) Elska kósý ..
Ohh, ég vissi að ég hefði ekki átt að fara í tölvuna, þá vaki ég alltaf svo lengi maður! :S .. Þannig já, ég er farin í rúmið, er orðin sibbin :)
Þangað til næst,
-Elín
