Auglýsing

<3

Friends will come and friends will go,
The seasons change and it will show,
I will age and so will you,
But our friendship stays, strong and true.

Já, ţá er komiđ ađ ţví!

02. ágúst 2007 klukkan 12:51

Jæja, þá er verslunarmannahelgin að fara að koma bara á morgn! Pæliði í því hvað tíminn líður hratt .. ótrúlegt! Eins og kom fram á fyrra bloggi þá ætla ég að halda mér fyrir vesta, jájá .. vonum bara að það verði fint 8-) Það er samt alltaf gaman að vera í bænum þegar það kemur mikið af fólki, en maður er búin að heyra að það sé alveg slatti af fólki að koma til að taka þátt í þessum blessaða mýrabolta. Ég er samt mjög ánægð að ég er ekki að fara að vinna neitt á þessari helgi, þá kannski líka nær maður að kíkja á mýraboltann og vera svona svolítið inní þessu litla sem að er að gerast hér :) Er reyndar að vinna sunnudag og laugardag frá 18-21 en það er nú ekki neitt til að kvarta undan! ..


En núna er ég bara að vinna í samkaup, og það er bara mun fínna en ég hélt! tíminn líður ekkert hratt en hann líður þó ;) .. Og það er líka svo brjálað að gera eikkvað, eins og í dag eru 2 stór skemmtiferðaskip af ameríkönum, og það er bara gaman að sjá þetta fólk sko. Þau eru svo krúttleg eikkvað, flest allt gamalt fólk og það brosir alltaf til manns og svona, breytir öllu ;) .. Ég verð bara eikkverstaðar að raða í hillur ef að ykkur vantar aðstoð :D


Síðan ætlaði ég að lýsa hneyksli mínu á þessari nýju þáttaröð þarna, eikkvað leitin af nýju nylon stúlkunni 8-) Er eikkvað verið að apa eftir pussy cat dolls eða er það bara ég ? Afhverju er ekki hægt að vera bara með áheyrnaprufur, þarf ekkert að gera þátt :S Ajji ég veit það ekki .. finnst það eikkvað svo lummó! Okay gellan hætti en come oon. En svona er þetta, litla Ísland verður alltaf svona, þarf alltaf að herma eftir öllu og ég ætla ekki einu sinni að telja upp alla þessa asnalegu þættina þar sem Íslendingar gera ,,góða'' tilraun til að búa til eikkverja raunveruleika þætt! ;)

En þar sem að ég er bara í hádegi þá hef ég hugsað mér að drulla mér aftur í vinnuna, shiiit ég nenni ekki að standa upp 8-)



-Elín

p.s ég var að reynslu aka myndavélina mína í gær með stelpunum, Elmu Andreiu og Borghild! .. Og útkoman var gelgjutripp 8-) Kannski að maður skelli árangrinum inná síðuna seinni partinn í dag! hoho ..

Verslunarmannahelgin :) vá langt orđ!

31. júlí 2007 klukkan 21:00
Ég hef voðalega lítið að segja, en samt ætla ég að blogga ;)

Úff, mig langar svo að komast í burtuuuu! shiit maður .. ég æli á hverju kvöldi við tilhugsunina að vera á Ísafirði. Þessi bær er að gera mig gráhærða. Verslunarmannahelgin er á næstu helgi og ég verð á Ísafirði :( Mig langar svo að fara til Akureyrar! Ég fór síðustu 2 skipti þangað og ég held í alvörunni að það hafi verið skemmtilegustu helgar lífs míns, en neinei! Ég verð á Ísafirði! .. Reyndar samt er mýrarboltinn hér, og maður hefur heyrt að það ætli mjög margir að koma hingað til að taka þátt í honum og svona, þannig að kannski verður þetta ekki sem verst ;) ..

Í gær var ég með Andreu, við fórum í sund á suðureyri og svona .. geðveikt nice! Síðan þurfti ég að fara að vinna frá 6-9 í samkaup og ég hef aldrei verið í vinnunni þegar tíminn líður svona hratt! alveg fáránlegt sko ;) En síðan beint eftir vinnu náði ég í Andreu og við fórum á rúntinn, það er langt síðan að það voru svona margir á rúntinum .. og líka svona lengi, við vorum alveg til hva, 12 og það var ennþá fullt af fólki að keyra í hringi ;) En síðan fór ég heim, svo tókum við Andrea næturrúnt, klukkan var hálf 3 og þessi næturrúntur var ekki að tilgangslausu, við þurftum að ná í hnátuna okkar. Og já, ekkert meira um það 8-) .. Það var grenjandi rigning og við vorum með kósý tónlist og það var meira að segja orðið frekar dimmt! Og aji, það var bara gaman hjá okkur :)

Svo í dag keypti ég mér myndavél! .. fína myndavél á 19.900 kr í BT .. þannig að það má alveg búast við að það komi fleiri myndir hérna inná síðuna á næstunni, ég verð nú að halda henni á lífi! Án þess að vera með slúður, ég nenni ekki svoleiðis bulli ;) Og by the way, veit eikkver hvernig í fjandanum maður setur myndir úr síma inní tölvu ? Hvernig virkar það .. 8-) ég er búin að fylla símann minn af myndum og mig langar að setja þær í tölvuna! og þess vegna kannski hingað á síðuna!



Ég sakna :(

Blablabla ..
 
p.s Andrea sexy beast ætlar að gera fyrir mig banner svo að síðan mín verði seiðandi ;)

-Elín
 


Fólk á sér bara mismunandi áhugamál!

30. júlí 2007 klukkan 00:33

Það er eitt sem að ég skil ekki, og ég held að margir geta verið sammála mér!

Sko Ísafjörður er bara þannig bær að hann er lítill og allir þekkja alla, bara misvel. Þegar fólk heyrir eikkvað svokallað ,,slúður'' er yfirleitt það fyrsta sem að það gerir er að setja það inná síðuna sína eða fara og blaðra því útum allt. Ég er náttúrulega ekkert að segja að maður slúðri ekki sjálfur við og við. En það sem að mér finnst bara svoo asnalegt er að þegar fólk heyrir eikkvað sem að er bara ekkert vit í og er bara EKKERT satt að það þurfi endilega að fara með það útum allt? Ég hef oft lennt í því að heyra bara eikkvað bull um sjálfan mig sem að er ekki satt, og það er óþolandi! Ég reyni samt bara alltaf að hugsa æji fuck it ég veit best sjálf, en það fer bara ekkert framhjá manni þegar fólk er að segja svona sögur um mann, og maður reynir náttlega að leiðrétta. En þegar öllu er á botinn hvolft þá kemur sögudreifarinn verstur útúr öllu. Ég er með eitt gott dæmi, sem að ég hló nú bara af þegar ég heyrði það :'D .. Enda hef ég bara ekki heyrt meira bull á ævi minni! 
        Það var þannig að ég var nýkomin í apollo og var svona aðeins farin að syngja með þeim og svona, og það var mjög fínt bara, voða gaman. En neinei! haha, auðvitað þarf eikkver að vera leiðinlegur og byrja að dreifa. En þetta var svo sannarlega ekki eina sagan sem að maður heyrði sko, þær voru margar. En allavega sagan sem að stóð uppúr var sú að ég átti víst að hafa sofið hjá öllum í apollo til að komast inní hljómsveitina. Hahaha, hvað er að fólki ? En allavega ég tók þessu samt ekkert voðalega alvarlega, ég eiginlega bara hló og hafði gaman að þessu. En já, svona getur þetta verið fáránlega sögur :D alveg ótrúlegt .. En ástæðan fyrir því að ég sé að tala um þetta er sú að ég heyrði mjög leiðinlega sögu um sjálfan mig í dag sem að er ekki sönn. Ég ætla ekkert að vera að segja hvernig hún hljómaði, en ég býst við að þeir sem að hafa heyrt hana viti um hvað ég er að tala. Þannig að ég vill bara segja hér og nú að þessi saga er misskilningur, mér var bara ruglað inní eikkvað mál sem að ég kom ekki nálægt! Þaannig að þið getið hætt að skemmta ykkur með því að segja eikkvað bull á minn kostnað :) ..


En allavega, ég nenni nú ekki að velta mér eikkvað mikið meira uppúr þessu, bara leiðinlegt að heyra svona. En svo að ég snúi mér að öðru, þá er helgin búin að vera ein sú skemmtilegasta af þessu sumri, ég er búin að skemmta mér konunglega bæði kvöldin. Á föstudaginn var partý hjá Bjarna og ég fór þangað og það var bara alveg slatti af fólki þar, mjög gaman :D Reyndar samt voru frekar mikið af yngri krökkum þarna en það var bara gaman á sinn hátt ... Svo á laugardaginn hélt ég útí sveit með Elmu og Báru Bjarna á hátíð sem að heitir því ágæta nafni rokk og rolla :) Ohhh, það var svo gaman þarna!! Þegar ég mætti sátu bara allir við varðeldinn og voru að spjalla, mjög kósý bara ..  Hlaðan var bara opnuð, skellt inn sviði og græjum .. svo byrjaði bara stuðið! Fólk hlaðaðist þangað úr öllum áttum og ég skemmti mér bara alveg konunglega!! Ég vona að þetta verði haldið aftur að ári, því að þetta er eitt af því sem að er geymt en ekki gleymt ;) .. TakkFyrirMig !

Núna er HG komið í sumarfrí og það þýðir bara eitt, ég er mjöög glöð að ég þurfi ekki að mæta í vinnuna á morgun, ég fæ að sofa út og það að það sé sunnudagur gerir mig engann vegin gráhærða eins og svo oft. 

En ég er orðin þreytt og hef ekki mikið meira að segja! nema bara, skemmtið ykkur í nýrri vinnuviku! ;)

Þangað til næst,

Elín Svalur  

Ţriđjudagur ..

24. júlí 2007 klukkan 19:45
Jææja, þá er kominn þriðjudagur sem að þýðir að á morgun er miðvikudagur og þá eru sko 2 dagar í helgina .. En persónulega hata ég þriðjudaga! Þá er ég alltaf svo þreytt, veit ekki afhverju ? ég vaknaði í morgun og ég get svo svarið það að ég hef aldrei verið svona mygluð á ævi minni, haha! Það var hræðilegt ;) Ég fór í vinnuna og svei mér þá, dagurinn var ekkert smá fljótur að líða! Vona að það verði nú líka svoleiðis á morgun :) ..
 
Ég hlakka til á helginni .. öss! Get ekki beðið eftir henni!

Í dag var sól sem að er bara jákvætt! .. ég, Andrea og Anna Lóa fórum í sund á súganda og ég sver mér leið eins og ég væri á spáni :o Það var ekkert SMÁÁ heitt! geðveikt nice. Mig langar svo að fara til spánar :(

.. Æji ég nenni ekki að skrifa meir! Þangað til næst,

-Elín

Helgin :)

22. júlí 2007 klukkan 14:19

Helgin er búin að vera mjööög skemmtileg! :D ég fékk svona sittlítið af hverju og það er alltaf fín! ..

Á föstudaginn var ég á bíl og ég var fyrst með Elmu og Borghild, en þeim langaði svo að horfa á mynd og ég var EKKI í stuði til þess þannig að ég fór bara á rúntinn með Sigurjóni fola .. og þar voru fullt af strákum í bílnum, svaaka stuð! Og já, það má segja að það hafi verið mjög spes! :'D Við kíktum til Hreiðars og þar var bara já svona ágætt stuð sko! Svaaka drama reyndar, en er það ekki á hverju strái ? Þegar ég var búin að vera þar í dágóðan tíma þá fór ég niður í bæ á bílinn minn og náði í Elmu og Borghild, og eins og ævinlega skemmtum við okkur konunglega á rúntinum og við hittum allskonar fólk og svona .. Fórum á rúntinn með Bigga á geðveika bílnum hans og svona ;D


Á laugardaginn var ég eiginlega í meira stuði og ég var hérna heima að lónerast og spila á gítar og eikkvað :) Svo fór ég út og kíkti aðeins til Borghildar og það var bara jáá mjöög gaman, HEY:'D .. En síðan enn og aftur fór ég til Hreiðars og það var haha, mjöög spes en samt gaman! .. Meiri hlutinn af partýinu þarna voru strákar, en ekki kvarta ég ;) Það var mikið ruglað í mér en það var bara fyndið! En svo kom löggan og já, það fóru allir heim eiginlega, held ég! allavegar í smá stund 8-) Ég, Emil og GunniBoy komum allavega hingað heim og svo komu Aron og Freysteinn og fullt af liði og við vorum bara eikkvað að spila á gítar og syngja, hafa læti .. hehe! En svo já, skipti ég um föt og fór útí vík! Þar var afmælið hans Jóa Frímann haldið og það var baaara gaman, það var í skálavík og það er svo FLOTT þar :O og það var ,,brenna'' og tjöld og bara svona ekta útileigustemming .. Ég ætlaði að gista þar sko en ákvað svo að fá far með Odd heim, langaði bara að fara heim í rúmið mitt! ;D Og ég gerði það, fór heim að sofa! Dauðþreytt eftir viðburðaríkt kvöld :D

En núna er bloody sunnudagur :( og ég HATA sunnudag, mig langar að gráta mig í svefn og deyja :D Pæliði í því, HEIL fkn vinnuvika framundan!!! En reyndar samt eftir þessa viku verður vinnan í HG búin og ég hlakka til að klára þetta, en þá tekur bara samkaup við :S Sumarið mitt er bara búið að vera vinna og ég er ekki búin að gera neitt annað í rauninni :) .. Ekki gaman! En þannig koma peningarnir :D ehaggi? En ég er meira að segja að pæla í að vera hérna á versló, ég nenni ekki að fara neitt og svo eru allir að tala um að það verði stuð héeér .. er það ekki bara málið ?? :)

En ég nenni ekki að skrifa meira, hef ekkert að segja!
Þangað til næst,

-Elín

Vinna, vinna og vinna! ..

20. júlí 2007 klukkan 21:16
Það er nú fátt annað sem að ég get talað um núna heldur en HG, þar sem að það er búið að vera bara já .. lífið mitt síðustu daga! :) Eins og í dag, þá var ég að vinna frá 7 í morgun og var búin klukkan 6 í dag .. 8-) Ekki gaman, en vitiði hvað ? Ég nenni ekki tala um vinnuna mína! .. hún er svooo þreytandi ;)

En ég er samt mjööög glöð!! Helgin er komin og ég bara gæti ekki verið ánægðari með það sko! :) .. Það er eikkvað froðupartý á vaxon annað kvöld, og maður er búinn að vera að heyra eikkvað píps vera að tala um að fara, samt það er svo asnalegt að það er sko unglingarnir sem að er eikkvað 14 - 17 ára eða eikkvað, og svo er 18 ára og eldri .. Þannig að það er spurning hvort að maður eigi að vera elstur í unglingateitinu eða reyna að vera yhngstur í ,,fullorðins'' teitinu .. Hvað gerir maður í því ?? en ég er ekkert voðalega spennt því að ég nenni ekki að blotna svona mikið 8-) Án djóks, svo er ég líka að fara í afmæli í skálavík þannig að já, maður verður bara að velja og hafna sjáiði til !!

Móðir mín er já, frekar spes .. En samt æðisleg kona! Hún er sko útí djúpi núna og ég er ein heima, en ég held að hún komi á morgun! .. Og hún spurði mig í kvöld: Jæja Elín, hvað á að gera í kvöld ? Og ég bara: Uuhm, baara drekka og dópa þú veist! Og mamma: Jájá, okay. En þú veist að þá verðuru ekki á bílinum!! .. Og ég bara HA ?! :D Mamma er eikkvað að? ég er ekki að fara að drekka og ENGAN veginn að fara að dópa .. þá fór kellan bara að hlæja! .. haha, steik!

image

Þá segi ég bara, SKEEEEMMTIÐ YKKIR Á HELGINNI!!

-Elín

ÉG HATA KRÍUUUR !

19. júlí 2007 klukkan 01:00
Í dag er ekki hægt að segja að það hafi verið sól, en vinnudagurinn kom mér á óvart því að hann leið hratt og ég skemmti mér í alvörunni bara ágætlega, var líka að vinna með Andreu í allan dag þannig tíminn flaug ;) En já by the way Andrea er komin og það er gaman :* Hún keypti sér fullt! .. Gaman að því, en ég var að átta mig á því í dag að það er bara að koma helgi !! Og ég er svo ánægð, vikurnar líða svo hratt að maður nær ekki að fylgjast með, mér finnst alltaf vera föstudagur .. En það er nú varla hægt að kvarta undan því er það ?

Í kvöld pönntuðum við stelpurnar ég, Elma og Andrea pizzu og það var gooott ;) En svo þegar við vorum búnar að éta kom Borghild á rúntinn með okkur og Andrea fór heima að kúrz með Kárz .. Þannig við þrjár stöllur héldum bara áfram að rúnta, en um svona hálf 12 var ég að spá að mig langaði svo að fara yfir á strönd og taka nokkrar myndir og svona, Borghild fór heim og við Elma fórum yfir nema hvað að þegar við komum útur bílnum þá fórum við bara niður á strönd, það var alltaf að koma svona ein og ein kría og ógna okkur .. En allt í einu kom alveg heill HEEER ! Og guuð, við hlupum eins og aldrei fyrr :D haha .. Þetta var svo planað hjá kríunum!! En það stoppaði sko ekkert okkur Elmu og við tókum myndir sem að ég set bráðlega hérna inn.
 



En þá er það bara að fara að sofa og slaka á .. Nenni ekki að vera þreytt í vinnunni á morgun þannig að ég læt þetta nægja ;*

Þangað til næst,

-Elín

Vinnuvikan hálfnuđ :)

18. júlí 2007 klukkan 01:00

Jæja, þá er maður bara í góðu geimi .. Vikan hálfnuð og ég get ekki kvartað. Ég var geðveikt ánægð í dag þegar ég fékk þær sólksinsfréttir að það væri bara þessi og næsta vika eftir af vinnu í HG .. svo er sumarfrí, ætli maður taki sér þá ekki bara nokkra daga í frí og fari svo í samkaup, hef ekkert annað að gera og ég nenni ekki að hanga heima og gera ekki neitt :) Það er fínt fyrst en þreytandi til lengdar sko!

Úff ég veit ég er alltaf að tala um þetta en þetta sumar er búið að vera svo ÆÐISLEGT! Baara sól og svona, mér finnst reyndar að ég sé ekki búin að gera neitt en að hanga inni og vinna, en só! Ég á alltaf eftir að hugsa, vá hvað sumarið 2007 var geðveikt .. Þetta sumar verður geymt en ekki gleymt ;)

En í gær gat ég ekki sofnað, í rauninni ekkert ákveðin ástæða fyrir því .. En þrátt fyrir að ég hafi verið dauðþreytt þá hafði ég svo mikið að hugsa að ég bara gat ekki sofnað fyrr en 4 eða eikkvað, eeekki gott! .. En ég var svo að hugsa, afhverju er fólk vont við annað fólk ? Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef að ég væri í geðveiku riflildi við vinkonu mína og kalla hana ýmis nöfn og svona og svo væri þetta bara síðasta samtalið mitt við hana, hún myndi lennda í bílslysi á leiðinni heim eða eikkvað .. Ég myndi ekki geta lifað við það :S Mér finnst svo skrýtið afhverju allir lifa ekki bara eins og þetta sé síðasti dagurinn, síðasti klukkutíminn og síðasta mínútan. Lífið er alltof stutt til að vera eikkvað að sóa því í pirring og asnaskap. Ég veit, það er þreytandi að lesa þetta :D haha, en þetta var bara svona svo að ég gæti sofnaði í kvöld, verð að koma þessu frá mér ! .. 

Á næstu helgi er ég að fara aftur í útileigu, ekki að ég nefni eikkvað hvert .. Allavega ekki í bili, og nei það er ekki ögur. Ohh, ég get ekki beðið eftir helginni ;) En þá lofa ég líka að taka fullt af myndum og setja þær hérna inná, þrátt fyrir að maður sé ekki alveg farinn að venjast þessu kerfi. Ég reyndi að setja nokkrar myndir hérna inná um daginn og þær vildu bara ekki koma, bömmer! Ég finn eikkvað útur þessi maður .. :)

En þetta er komið gott, ég ætla ekki að drepa alla úr leiðindum!..

 ... GoodTimes ;)

Þangað til næst,

-Elín helgarást :)

Sól sól skín á mig ! :D

16. júlí 2007 klukkan 18:14

Í dag var svo sannarlega gott veður :) Og ég fór með Elmu í skóginn og við vorum heillengi í sólbaði, geðveikt nice! Þegar ég kom heim og var að fara að þrífa bílinn sá ég að Anna og Bára voru að fara á ströndina þannig að ég ákvað að joina þær. Við fórum yfir og það var bara mjög gaman, vorum bara eikkvað að fíflast og taka myndir og svona .. Sólin er svakalega heit og góð og í dag í skóginum leið mér eins og ég  væri í útlöndum! Í kvöld ætla ég að grilla mér kjúklingabringur og fá mér eikkvað gott með, ég er ennþá ein heima og maður verður nú bara að redda sér þrátt fyrir að eldamennska sé kannski ekki mín sterkasta hlið! Svo kannski að maður fari og leigji sér video eða eikkvað ?

Á næstu helgi er ögurballið, maður hefur heyrt að fólk sé að fara þangað og eikkvað .. En ég er nú ekki alveg viss hvort að ég nenni því sko, kannski að maður fari í bústaðinn eða á reykjanes en ég er ekki að nenna að fara að tjalda :) En það er aldrei að vita hvort að maður nenni eikkvað að fara yfir höfuð! Kannski verð ég bara heima og slaka á, en það endar alltaf með því að ég er driver langt frammá nótt og næ að snúa sólahringnum við á einni helgi, sem að er ekki gott því að það tekur alla vikuna að snúa honum aftur við en svo endurtekur leikurinn sig aftur næstu helgi .. pff!

Eeen ég hef ekkert meira að segja, þannig að ég ætla bara að segja þetta gott! .. er farin að elda!

Þangað til næst

-Elín

Upphaf nýrrar síđu ..

16. júlí 2007 klukkan 03:26

Já í tilefni þess sem að ég hef alltaf svo mikið að segja eikkvað og ég nenni ekki að vera önnur hver bloggfærsla í stoltinu þá hef ég ákveðið að byrja með mína eigin síðu, er það ekki bara sniðugast ? Svalur Loksins getur maður farið að blaðra eins mikið og maður vill á netinu, það er gaman! Ég hefur nú líka heyrt að þetta sé mjög þæginlegt kerfi á þessum síðum og því ekki þá bara að prófa ? .. Ég er svona að fikra mig áfram í þessu öllu saman, og hef ég því góða ástæðu fyrir því að ég er ekki löngu farin að sofa.

I still got last night in my body;; Í gær var alveg svakalegt gaman, en við stöllur ég, Elma og Borghild Agla gerðum okkur lítið fyrir og skelltum okkur á sæluhelgina með tjald og kælibox! .. Þar sem að hvorki Elma né Borghild áttu tjald enduðum við með því að taka eldgamla fjölskyldu tjaldið mitt! Það er svona risastórt og apelsínukúkabrúnt á litinn, eða eins og Arnar Guðmunds orðaði svo skemmtilegar: Þetta er á litinn eins og þegar barn er búið að fara á thai koon og fær svo skitu, haha maður spyr sig ;) En við kusum nú bara að kalla það neyðarskýlið! Já það tók sinn tíma að tjalda þessi blessaða tjaldi og Elma var æstust að reyna, en hún var ekki ein um að spreyta sig á þessari þraut! óneei, nokkrar krúttlur úr cosmic komu og reyndu þetta og fleiri til. Þegar við vorum loksins búnar að setja upp innaní tjaldið þá kom pabbi Elmu og dúndraði yfirtjaldinu yfir og negldi því niður eins og hann hafði aldrei gert neitt annað ;) Það má segja að þetta hafi verið ágætt partýplace. Því að það gerðist þó nokkrum sinnum að fólk var farið að hrúast inní blessaða tjaldið okkar og fyrir utan það. Sem að var fínt, nema hvað að manni finnst kannski óþæginlega að hafa ókunnuga þar sem að sængin manns og dótið manns er. Þannig að við vorum nú ekki lengi að yfirgefa staðinn og fólk týndist hægt og bítandi í burtu frá tjaldinu okkar. Svo var ball þarna um nóttina og margir sem að kíktu eikkvað á það, en ég var ekki að tíma að borga 2500kr þannig að ég sleppti því bara :) Enda voru margir sammála um það að aðalstemmingin hafi verið úti! .. Nóttin einkenndist meira og minna af spjalli við fólk og göngutúrum um Suðureyri! .. Þetta var gaman, ég vil nýta tækifærið og biðjast fólk afsökunar á því ef að ég kom og var að rugla í ykkur! haha Hl&aelig;jandi

 .. það var eikkvernveginn svona, en þó mun verra á litinn ! En við sváfum allavega vel ;)

En já, bara takk fyrir þetta allir Koss

Ég veit ekki hvort að ég sé ein um þetta en er sumarið bara að labba í burtu? Mér finnst eins og það sé að verða búið en samt nýbyrjað .. haha rugl! En mér finnst einnig að ég hafi átt að vera búin að gera meira, maður er nú bara eiginlega búin að vera vinnandi eins og brjálæðingur og svona ... En það getur nú verið jákvæt. Svo er það þessi blessaða verslunarmannahelgi, mig langar svo að fara eikkvað! En skiljanlega vill mamma ekki hleypa mér á eikkvera útihátið aleinni eða með vinum mínum, og hún segir alltaf Elín mín, bíddu bara þangað til næsta sumar! En ég get ekki séð að ég verð eikkvað mikið þroskaðari eftir eitt ár, eða þegar maður er kominn í þann heilaga aldir 18 ára. Öss það er alltof stutt í tvítugt ;D ...

En núna þarf ég að fara að drífa mig í bólið, ég nenni ekki að vera neitt voðalega lengi á fótum þrátt fyrir að það sé orðið of seint, haha! Ég vona að þið hafið gaman af því að lesa bullið í mér því að hér verður sko alveg nóg af því :D

Þangað til næst

-Elín

...

Ég ..

  • Nafn: Elin Sveinsdóttir
  • Netfang: elin_sveins@hotmail.com
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Atvinna: Samkaup Úrval
  • Hjúskaparstađa: Laus
  • Um mig: Ţú finnur ţađ annarstađar á síđunni :)
  • Annađ: Take care

Klukkan