Jólafrí ! ;)
Jæja, þá er maður loksins búin með þessi próf! .. get ekki lýst því hvað ég er glöð, og ég er því komin í jólafrí .. Eða jólafrí og ekki jólafrí, ég byrjaði að vinna í frystihúsinu í morgun og það er bara mjög fínt, mæti einmitt aftur á morgun..
- En það er svakalegt rugl hjá mér í sambandi við þennan blessaða svefn, ég er alltaf vakandi til svona 5 á næturnar og sef svo allan dagin, alveg óþolandi.. ég bara get ekki sofnað fyrr :D .. sama hvað ég reyni!
En bráðum koma blessuð jólin
Finnst engum skrýtið hvað tíminn líður hratt? mér finnst eins og það hafi verið sumar í gær, síðan kemur veturinn allt í einu og svo bara já, búmm! jólin gengin í garð.. ég veit ekki hvernig ég á að haga mér sko, er búin að taka til og skreyta í herberginu mínu sem að er fínt og kósý ;) ..
- Síðan er ég að fara að taka inn hesta á laugardaginn og ég get ekki beðið eftir því að fara að kemba og gefa þeim jólaepli :D .. ég vorkenni þeim svo mikið, þeim er örugglega skíítkalt þarna úti núna.. hefði viljað taka þá inn helst bara í gær :)
En meira hef ég ekki að segja í bili, hafið það gott.. missið ykkur í jólagleðinni og jólanamminu! ég ætla allavega að gera það ;D
-ElínSveins

góða skemmtun x)