Auglýsing

<3

Friends will come and friends will go,
The seasons change and it will show,
I will age and so will you,
But our friendship stays, strong and true.

Jólin koma..

11. nóvember 2008 klukkan 13:23

Nú er ég aldeilis hissa, tíminn flýgur og ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér lengur :D .. er að pæla í að leggjast samt bara í dvala þangað til að jólafríið er komið, nenni ekki að mæta í skólann og nenni ekki að taka þessi fúlu próf!
Núna akkúrat sit ég í þýsku og það eru svo leiðinlegir tímar, shit.. og svo þarf ég að dúsa í skólanum til 3 ..

... En annars er ég bara nokkuð hress, fór á ballið á föstudaginn eða skrallið réttara sagt og það var bara já frekar gaman, ég var hress eins og þið kannski sáuð :) en síðan já fór ég bara heim og borðaði allan heiminn áður en að ég fór að sofa. Hinsvegar á laugardaginn þá fór ég yfir á Flateyri á hljómsveitaræfingu, eða svokallaða bjóræfingu eins og við köllum þetta. Þá komum við saman og drekkum bjór og æfum, og það er bara helmingi skemmtilegra. En eftir æfinguna varð ég einhvað slöpp og ákvað að fara bara heim því að ég nennti ekki að fara í partý eða hanga fyrir utan edinborg í frjósandi kulda. Ég fór bara heim, kúrði mér undir hjónasængina og horfði á notebook, kvöldið breyttist úr brjáluðu fjöri í kósý time með sjálfri mér.

Á næstu helgi er ég síðan að fara að spila á grunnskólaballi á flateyri á föstudaginn, það er einhvað kirkjugarðaþema sem að ég mér finnst alveg rosalega fallegt þema. Ég vona bara að það verði gaman og ég vona að sem flestir mæti á þetta ball sem að eru í grunnskólanum!.. Það er bara skylda. Því að annars erum við búin að vera að æfa eins og fávitar fyrir ekki neitt :) .. síðan á laugardaginn verðum við kannski að spila á Vagninum, og jájá.. bara brjálað að gera hjá mér þarna, en ég er ekki bara að æfa fyrir þetta skólaball þessa dagana, því að ég er víst að fara að syngja á jólahlaðborðum í desember ásamt Elmu og fleirum. Það verður bara gaman.. síðan koma bara blessuð jólin ;)

En ég ætla að reyna að fara að fylgjast með í þýsku, ég þarf verulega á því að halda..
-Elín

Skrifa athugasemd

...

Ég ..

  • Nafn: Elin Sveinsdóttir
  • Netfang: elin_sveins@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Atvinna: Samkaup Úrval
  • Hjúskaparstaða: Laus
  • Um mig: Þú finnur það annarstaðar á síðunni :)
  • Annað: Take care

Klukkan