Auglýsing

<3

Friends will come and friends will go,
The seasons change and it will show,
I will age and so will you,
But our friendship stays, strong and true.

Sćl og blessuđ ..

29. janúar 2009 klukkan 11:55
Já góðan!

ég hef ekki skrifað hér í aldaraðir, er ekki að nenna að blogga hérna.. kann bara ekki að deleta þessari síðu :D .. En ég samt hef voðalega takmarkaðan tíma til að blogga, eða bara vera í tölvunni yfir höfuð..

Ég er semsagt að:
Vera í skólanum
Vera á hestbaki (sjá um 2 hesta)
Vera í ræktinni
Vera í 2 leikritum!
Vera í söngnámi

Þannig að dagurinn hjá mér er alltaf fullbókaður og ég þyrfti eiginlega að fá nokkra auka klukkutíma á sólahringnum því að ég hef ekki tíma til að gera þetta allt, svo þarf maður náttúrulega líka að læra heima og reyna að vera duglegur í skólanum, sem að er ekki að ganga ef að ég á að segja eins og er :D .. En helgin sem að er að koma verður alveg heavy skemmtileg, ég er að fara að djamma báða dagana, reyndar eru æfingar báða dagana líka en samt, ég er að fara á þarna gleðskapinn í Hnífsdal báða dagana, einhvað Dj dót geðveikt spennandi :D .. Síðan er ég að fara að dæma í samfés á föstudaginn í bolungarvík sem að mér finnst líka geðveikt spennandi =) Gaman að sjá þetta líka og ég á örugglega eftir að vera geðveikt lengi að reyna að raða þessum krökkum í sæti! ..

En ég er farin, sjáumst!
=)

Gleđileg jól elskurnar mínar !

24. desember 2008 klukkan 21:20

Elín Sveins óskar ykkur gleðilegra jóla

og farsælt komandi ár, takk fyrir allar

góðar stundir á árinu sem að er að

líða, hafið það gott yfir hátíðirnar.

Borðum sem mest ;)

 

Jólafrí ! ;)

11. desember 2008 klukkan 01:22

Jæja, þá er maður loksins búin með þessi próf! .. get ekki lýst því hvað ég er glöð, og ég er því komin í jólafrí .. Eða jólafrí og ekki jólafrí, ég byrjaði að vinna í frystihúsinu í morgun og það er bara mjög fínt, mæti einmitt aftur á morgun..
- En það er svakalegt rugl hjá mér í sambandi við þennan blessaða svefn, ég er alltaf vakandi til svona 5 á næturnar og sef svo allan dagin, alveg óþolandi.. ég bara get ekki sofnað fyrr :D .. sama hvað ég reyni!

En bráðum koma blessuð jólin
Finnst engum skrýtið hvað tíminn líður hratt? mér finnst eins og það hafi verið sumar í gær, síðan kemur veturinn allt í einu og svo bara já, búmm! jólin gengin í garð.. ég veit ekki hvernig ég á að haga mér sko, er búin að taka til og skreyta í herberginu mínu sem að er fínt og kósý ;) ..

- Síðan er ég að fara að taka inn hesta á laugardaginn og ég get ekki beðið eftir því að fara að kemba og gefa þeim jólaepli :D .. ég vorkenni þeim svo mikið, þeim er örugglega skíítkalt þarna úti núna.. hefði viljað taka þá inn helst bara í gær :)

En meira hef ég ekki að segja í bili, hafið það gott.. missið ykkur í jólagleðinni og jólanamminu! ég ætla allavega að gera það ;D

-ElínSveins

Blee

25. nóvember 2008 klukkan 10:43
Það gerðist sögulegur viðburður í skólanum í dag!! SÖGULEGUR!
-Við fengum að fara fyrr úr tíma hjá Stefáni Gunther, og það alveg 20 mínótum fyrr.. shit ég hélt að ég yrði ekki eldri ..

En já, dagurinn í dag fer hægt af stað.. ég þarfa að vera í skólanum frá 8-15 straight og engin eyða.. Það suckar, já það sucar. Ég sit hérna í stærðfræði, ætti að vera að læra en ég bara hreinlega nenni því ekki.. Er bara að nýta tímann til þess að chilla, því að næsti tími er ekki beint chill því að næsti tími er saga hjá Andreu Harðar.
-
Helgin ber ýmislegt í skautum sér, það er 1.des ball á föstudaginn og ætli það verðu bara ekki gaman! síðan er ég að fara að syngja á hótelinu á laugardaginn og einnig er ég að fara á Abba showið og jólahlaðborð á Edinborg. Ég get ekki beðið eftir að borða á mig gat og hlusta á abba lög, það er jújú alveg ágætis blanda ;)
Hver er DJ Margeir? Ég hef aldrei heyrt um hann, getur einhver sagt mér hvaða maður þetta er :D

- En ég ætla að skella nokkrum ýmislegum skemmtilegum myndum inná síðuna svo að hún haldi nú lífi ;) ...

Tjááá ;*

Jólin koma..

11. nóvember 2008 klukkan 13:23

Nú er ég aldeilis hissa, tíminn flýgur og ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér lengur :D .. er að pæla í að leggjast samt bara í dvala þangað til að jólafríið er komið, nenni ekki að mæta í skólann og nenni ekki að taka þessi fúlu próf!
Núna akkúrat sit ég í þýsku og það eru svo leiðinlegir tímar, shit.. og svo þarf ég að dúsa í skólanum til 3 ..

... En annars er ég bara nokkuð hress, fór á ballið á föstudaginn eða skrallið réttara sagt og það var bara já frekar gaman, ég var hress eins og þið kannski sáuð :) en síðan já fór ég bara heim og borðaði allan heiminn áður en að ég fór að sofa. Hinsvegar á laugardaginn þá fór ég yfir á Flateyri á hljómsveitaræfingu, eða svokallaða bjóræfingu eins og við köllum þetta. Þá komum við saman og drekkum bjór og æfum, og það er bara helmingi skemmtilegra. En eftir æfinguna varð ég einhvað slöpp og ákvað að fara bara heim því að ég nennti ekki að fara í partý eða hanga fyrir utan edinborg í frjósandi kulda. Ég fór bara heim, kúrði mér undir hjónasængina og horfði á notebook, kvöldið breyttist úr brjáluðu fjöri í kósý time með sjálfri mér.

Á næstu helgi er ég síðan að fara að spila á grunnskólaballi á flateyri á föstudaginn, það er einhvað kirkjugarðaþema sem að ég mér finnst alveg rosalega fallegt þema. Ég vona bara að það verði gaman og ég vona að sem flestir mæti á þetta ball sem að eru í grunnskólanum!.. Það er bara skylda. Því að annars erum við búin að vera að æfa eins og fávitar fyrir ekki neitt :) .. síðan á laugardaginn verðum við kannski að spila á Vagninum, og jájá.. bara brjálað að gera hjá mér þarna, en ég er ekki bara að æfa fyrir þetta skólaball þessa dagana, því að ég er víst að fara að syngja á jólahlaðborðum í desember ásamt Elmu og fleirum. Það verður bara gaman.. síðan koma bara blessuð jólin ;)

En ég ætla að reyna að fara að fylgjast með í þýsku, ég þarf verulega á því að halda..
-Elín

Já ég sló bara til !

04. nóvember 2008 klukkan 18:13

Jamm, ég fór í gær í klippingu og mér langaði svo í einhverja tilbreytingu.. Ég ákvað að prófa að vera dökkhærð =) og hér er árángurinn..

Fyrir >
Jamm, svona lítur þetta út =) ..
-Endilega koma með comment og segja ykkar álit ..

-ElínSveins

Langa helgin búin .. :(

27. október 2008 klukkan 22:36
Já, langa helgin er búin .. og það er ömurlegt, það er svo gott að sofa út og hafa það gott :D ég er bara búin að vera að hanga heima og gera ekki neitt, nema jú á laugardaginn þá fór ég á djammið og það var bara mjög gaman, við stelpurnar vorum fyrst bara hérna heima og vorum aðeins að sjússa og síðan fórum við heim til Hemma tvíbura og það var svona smá afmæli =) og síðan fórum við bara á edinborg og það var bara mjög skemmtilegt, ball með apollo og læti, þótt að ég muni ekki svona helmingin af því þá var samt gaman, ég man heldur ekkert eftir heimleiðinni..ég datt víst og eyðilagið sokkabuxurnar mínar, svo þegar ég kom heim þá var síminn minn ónýtur, heeheee.. jáá góðan daginn sko! En já, annars er ég bara hress, mikið kjaftæði búið að vera að skrifa inná síðuna mína samt sem að ég er ekki sátt með .. en ég er búin að eyða því því að ég nenni ekki að hafa einhvað asnalegt commenta stríð hérna inni, soo last year :D

En já, ég er bara farin að láta pounda mig eins og einhver orðaði í commentunum, því að það er jújú eitt af því sem að ég geri greinilega ;)

-Elín

Langa helgin ..

22. október 2008 klukkan 14:14

Jæja, nú er svona næstum því komin löng helgi.. allaveag hjá mér, það er fimmtudagur á morgun og síðan er bara komin helgi fram á þriðjudag :D það eru bara þrír tímar hjá mér á morgun þannig að mér finnst eins og það sé komin löng helgi. Og ég hlakka geðveikt til =)

Ég held að það sé ekki neitt djamm á helginni, ég er líka að fara að vinna alla helgina.. og ég nenni því ekki en ég vona samt að það verði einhvað skemmtilegt að gera.. Elma og Katrín eru að fara suður og vonandi skemmta þær sér bara helvíti vel :D

En svo er eitt annað, ég er sko ekki sátt við þetta svokallað 3.bekkjar-ráð sem að enginn kaus. Fundurinn í gær var ÖMULEGUR! meira segi ég ekki.

 

Takk fyrir

-Elín

Össs..

08. október 2008 klukkan 00:20


Það er brjáluð helgi framundan :D Er það ekki Fanney?
á föstudaginn er bloodgroup að spila á edinborg og það verður án efa brjálað stuð og síðan tekur Halfdán við og ekki verður það síðra.. Og síðan á laugardaginn þá verður einhvað brjálað dj-djamm á edinborg og ég get ekki heldur beðið eftir því! topp helgi, en síðan á næsta fimmtudag kemur enginn annar en Páll Óskar og það verður geeeðveikt, en það er reyndar á fimmtudegi, það verður stuð að sjá hvernig það fer ..



En já meira var það ekki í bili
- Elín

Blee..

29. september 2008 klukkan 14:33
Heyrðu núna er ég bara svona nokkuð ánægð með lífið!.. ég er næstum því búin í hlutaprófum í skólanum og ég er bara búin að vera að fá ágætis einkunnir, eins og t.d í stæ fékk ég 10 og í þýsku fékk ég 7,3.. ég hef aldrei fengið svona hátt í þessu! aldrei :D ..

En helgin var bara mjög fín, á föstudaginn var ég heima hjá Fanney og það var bara mjög gaman, síðan á föstudaginn var ég heima hjá Katrínu Fríðu og það var bara líka mjög gaman.. En bæði kvöldin enduðu á Edinborg og það var svona lala bara.. Ég var mjög mikið með Andreu á laugardaginn og það var svona frekar skrautlegt að sjá okkur.. haha ;D .. En síðan fór ég í einhvað eftirpartý sem að var bara svona ekkert mjög spes, eða svona já.. æji ég veit það ekki :D .. En það voru teknar nokkrar myndir heima hjá Katrínu og já,
HÉRNA ER AFRAKSTURINN ;)

                                  


Segjum þetta gott í bili .. bleee




 



 


 


...

Ég ..

  • Nafn: Elin Sveinsdóttir
  • Netfang: elin_sveins@hotmail.com
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Atvinna: Samkaup Úrval
  • Hjúskaparstađa: Laus
  • Um mig: Ţú finnur ţađ annarstađar á síđunni :)
  • Annađ: Take care

Klukkan